Þórarinn Þorgeirsson
Sérfræðingur
Lögmaður
Netfangthorarinn@juris.is
Þórarinn er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Þórarinn hefur umtalsverða reynslu af ýmsum sviðum lögfræðinnar í íslensku og erlendu fjármála og viðskiptaumhverfi bæði úr einkageiranum og hjá hinu opinbera. Þórarinn sinnir m.a. verkefnum á sviði banka og fjármagnsmarkaða, félagaréttar, fjármögnun fyrirtækja, gjaldþrotaréttar og fjárhagslegrar endurskipulagningar auk yfirtöku og samruna (M&A). Þórarinn hefur í störfum sínum sinnt stjórnarmennsku í ýmsum fyrirtækjum og hefur einnig tekið þátt í laga og reglusetningu á fjármálamarkaði. Þórarinn hefur jafnframt verið metinn hæfur af Fjármálaeftirlitinu til að eiga sæti í stjórn viðskiptabanka. Þórarinn hefur starfað hjá Juris frá árinu 2021.
Starfssvið
Menntun
- Metinn hæfur af Fjármálaeftirlitinu til að eiga sæti í stjórn viðskiptabanka 2017 (Arion)
- Héraðsdómslögmaður 2003
- Háskóli Íslands, cand. jur. 2000
Starfsferill
- Juris frá 2021
- Drangi lögmenn 2019-2021
- Varamaður í stjórn Arion banka hf. 2017 - 2019
- Kaupþing 2009 - 2019 (skilanefnd ´09-´11, slitastjórn ´12-´16, Kaupþing ehf. ´16-´19)
- 2013-2019 Framkvæmdastjóri á lögfræðisviði Kaupþings
- 2013 – 2019 Meðlimur í eignanefnd Kaupþings
- 2011- 2013 Aðstoðarframkvæmdastjóri á lögfræðisviði Kaupþings
- 2009- 2011 Forstöðumaður á lögfræðisviði Kaupþings
- Investum ehf. 2008-2009 - yfirlögfræðingur
- Askar Capital fjárfestingarbanki 2007- 2008 – yfirlögfræðingur á fasteignaþróunarsviði
- Lex lögmannstofa 2006-2007
- Fjármálaeftirlitið 2002- 2006
- Nefndasvið Alþingis 2000-2002