IS EN

Þórarinn Þorgeirsson

Þórarinn Þorgeirsson Sérfræðingur Lögmaður

Þórarinn er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Þórarinn hefur umtalsverða reynslu af ýmsum sviðum lögfræðinnar í íslensku og erlendu fjármála og viðskiptaumhverfi bæði úr einkageiranum og hjá hinu opinbera. Þórarinn sinnir m.a. verkefnum á sviði banka og fjármagnsmarkaða, félagaréttar, fjármögnun fyrirtækja, gjaldþrotaréttar og fjárhagslegrar endurskipulagningar auk yfirtöku og samruna (M&A). Þórarinn hefur í störfum sínum sinnt stjórnarmennsku í ýmsum fyrirtækjum og hefur einnig tekið þátt í laga og reglusetningu á fjármálamarkaði. Þórarinn hefur jafnframt verið metinn hæfur af Fjármálaeftirlitinu til að eiga sæti í stjórn viðskiptabanka. Þórarinn hefur starfað hjá Juris frá árinu 2021.

Starfssvið

Menntun

  • Metinn hæfur af Fjármálaeftirlitinu til að eiga sæti í stjórn viðskiptabanka 2017 (Arion)
  • Héraðsdómslögmaður 2003
  • Háskóli Íslands, cand. jur. 2000

Starfsferill

  • Juris frá 2021
  • Drangi lögmenn 2019-2021
  • Varamaður í stjórn Arion banka hf. 2017 - 2019
  • Kaupþing  2009 - 2019    (skilanefnd ´09-´11, slitastjórn ´12-´16, Kaupþing ehf. ´16-´19)
    • 2013-2019 Framkvæmdastjóri á lögfræðisviði Kaupþings
    • 2013 – 2019 Meðlimur í eignanefnd Kaupþings
    • 2011- 2013 Aðstoðarframkvæmdastjóri á lögfræðisviði Kaupþings
    • 2009- 2011 Forstöðumaður á lögfræðisviði Kaupþings
  • Investum ehf. 2008-2009 - yfirlögfræðingur
  • Askar Capital fjárfestingarbanki 2007- 2008 – yfirlögfræðingur á fasteignaþróunarsviði
  • Lex lögmannstofa 2006-2007
  • Fjármálaeftirlitið 2002- 2006
  • Nefndasvið Alþingis 2000-2002